Á aðalfundi Minjaverndar þann 27. maí sl. var gerð sú breyting á samþykktum Minjaverndar að stjórnarmönnum var fækkað úr fimm í þrjá. Tilnefnir því hver hluthafi einn stjórnarmann og einn til vara eftir þá breytingu.
Af hálfu ríkis var tilnefndur Þórhallur Arason sem aðalmaður og Sólveig Pétursdóttir sem varamaður.
Af hálfu Reykjavíkurborgar var Helena Rós Sigmarsdóttir tilnefnd sem aðalmaður og Guðbrandur Benediktsson sem varamaður.
Af hálfu Minja sjálfseignarstofnunar var Þröstur Ólafsson tilnefndur sem aðalmaður og Stefán Friðfinnsson sem varamaður.
Þessar tilnefningar voru staðfestar á aðalfundinum.
Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar var Þröstur Ólafsson kjörinn formaður stjórnar og Þorhallur Arason varaformaður.