Fréttir

Verkefni Minjaverndar þessa dagana

Minjavernd vinnur að ýmsum verkefnum þessa dagana. Hegningarhúsið er áfram í vinnslu og er nú verið að reisa Veitingaskála sem staðsettur er í bakgarðinum. Hægt er að fylgjast með framvindunni á myndasíðu Hegningarhúss hérna á vefnum. Minjavernd hefur verið að vinna að ýmsum verkefnum fyrir Storð ehf. Auk Hegningarhússins má þar nefna viðhaldi á Kennaraskólanum við Laufásveg og Stýrimannaskólanum við Öldugötu. Ennfremur má nefna framhald á uppbyggingu í Ólafsdal.