26.09.2025
Minjavernd vinnur að ýmsum verkefnum þessa dagana.
Hegningarhúsið er áfram í vinnslu og er nú verið að reisa Veitingaskála sem staðsettur er í bakgarðinum.
Hægt er að fylgjast með framvindunni á myndasíðu Hegningarhúss hérna á vefnum.
Minjavernd hefur verið að vinna að ýmsum verkefnum fyrir Storð ehf.
Auk Hegningarhússins má þar nefna viðhaldi á Kennaraskólanum við Laufásveg og Stýrimannaskólanum við Öldugötu.
Ennfremur má nefna framhald á uppbyggingu í Ólafsdal.
19.06.2025
Á aðalfundi Minjaverndar þann 27. maí sl. var gerð sú breyting á samþykktum Minjaverndar að stjórnarmönnum var fækkað úr fimm í þrjá. Tilnefnir því hver hluthafi einn stjórnarmann og einn til vara eftir þá breytingu.
Af hálfu ríkis var tilnefndur Þórhallur Arason sem aðalmaður og Sólveig Pétursdóttir sem varamaður.
Af hálfu Reykjavíkurborgar var Helena Rós Sigmarsdóttir tilnefnd sem aðalmaður og Guðbrandur Benediktsson sem varamaður.
Af hálfu Minja sjálfseignarstofnunar var Þröstur Ólafsson tilnefndur sem aðalmaður og Stefán Friðfinnsson sem varamaður.
Þessar tilnefningar voru staðfestar á aðalfundinum.
Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar var Þröstur Ólafsson kjörinn formaður stjórnar og Þorhallur Arason varaformaður.
19.06.2025
Grettisgötuhúsin eru nú bæði seld og búið að afhenda nýjum eigendum húsin.
Minjavernd óskar nýjum eigendum til hamingju með þessi glæsilegu hús.