Gröndalshús

Sigurður Jónsson járnmiður lét byggja húsið 1882 að Vesturgötu 16 b og hafði járnsmiðju sína í austurhluta neðri hæðar hússins.

Form hússins og innra skipulag þess ber upphaflegrar notkunar merki, t.d. eru í því tveir skorsteinar annar fyrir járnsmiðjuna en hinn til nota fyrir húsið að öðru leyti. Jafnframt ber það nokkuð form af efnivið þeim sem til byggingarinnar var notaður, en það var að stórum hluta til timbur úr strandi skipsins Jamestown, stóru skipi sem strandaði við Garðskaga fulllestað timbri. Húsið þótti sérstakt í formi og var í upphafi nefnt Skrínan, Skattholið eða Púltið. Bygging hússins og rekstur járnsmiðjunnar varð Sigurði ofviða fjárhagslega. Hann missti húsið og verkfæri járnsmiðjunnar urðu síðar ein fyrstu verkfæri Vélsmiðjunnar Héðins.

Benedikt Gröndal keypti húsið 1888 og bjó í því þar til hann lést 1907. Húsið var nefnt eftir Benedikt og kallað Gröndalshús. Gröndalshús er merkilegt bæði fyrir byggingarsögu og form, en ekki síður fyrir þátt sinn í menningarsögu landsins en í því ritaði Benedikt mörg verka sinna og teiknaði þær stórfenglegu myndir og skjöl sem eftir hann liggja. Má þar til taka Dýraríki Íslands, Fuglabókina og Dægradvöl. Fjölskylda Benedikts átti húsið til 1927, en þá keyptu Ámundi Hjörleifsson og Eugenia I. Nilsen það. Eugenia bjó í húsinu þar til hún lést 2004.

Húsið var komið í mikla niðurníðslu og stóð í vegi fyrir stórhuga framkvæmdaaðilum hvar það var byggt. Um nokkurt árabil var þrefað um framtíð þess, en að lokum var það flutt af sínum stað og geymt á Grandagarði. Í samningi milli Reykjavíkurborgar og Minjaverndar tók Minjavernd að sér að annast endurgerð hússins og flutning þess á nýjan stað að Vesturgötu 5 b. Arkitekt að endurgerð hússins var Hjörleifur Stefánsson.

Reykjavíkurborg er eigandi þess og nýtir fyrir menningarstarfsemi tengri Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO. Þar er nú sýning um Benedikt Gröndal á aðalhæð þess, íbúð í kjallara og vinnuaðstaða fyrir fræðimenn á efri hæð. Endurgerð hússins lauk í sumarbyrjun og þann 16. júní var það formlega opnað af Degi B. Eggertssyni, borgarstjóra Reykjavíkur.